Heilbrigðari desember
Hvernig þú getur haldið jafnvægi og vellíðan í jólamánuðinum, án þess að bíða eftir janúar.
Desember er yndislegur mánuður: hátíðlegur, hlýr og fullur af samveru.
En hann getur líka verið yfirþyrmandi.
Þegar álagið eykst, dregur úr hreyfingu og mataræðið fer úr skorðum, þá upplifa margar konur þreytu, uppþembu, svefnleysi og jafnvel sektarkennd yfir því að hafa “misst” tökin.
En það þarf ekki að vera svona.
Af hverju við missum jafnvægið í desember
Það er ekki viljastyrkurinn sem bregst, heldur umhverfið.
Í jólamánuðinum breytist rútínan. Við erum meira á ferðinni, borðum óreglulega og fáum meira af sykri, koffíni og litlum svefni.
Það er líka tíminn þegar smákökur, jólahlaðborð og “bara einn konfektmoli í viðbót” verða að daglegu mynstri og áður en við vitum af er orkan farin
að sveiflast og líkaminn þreyttur. Það hefur svo áhrif á bæði líðan og ákvarðanatöku.
Þegar líkaminn er stressaður, þá kallar hann á “skjótar lausnir”: sætindi, gos- og orkudrykki eða hvíld án endurhleðslu.
Og þegar við bætum við pressunni að reyna að gera allt fullkomið, þá endum við fljótt í vítahring.
Lausnin: Meðvitund, jafnvægi og einföld dagleg skref
Það sem raunverulega skiptir máli er ekki að gera allt fullkomið, heldur að gera litla hluti stöðugt, aftur og aftur.
Þess vegna hef ég skapað Heilbrigðari desember (jóladagatal fyrir líkama og sál).
Það er 24 daga áskorun sem hjálpar þér að finna meira jafnvægi, orku og vellíðan yfir hátíðarnar, án pressu eða flókins prógramms.
Hvernig þetta virkar
Frá 1. desember til 24. desember færðu:
Það tekur aðeins örfáar mínútur á dag, en hjálpar þér að halda rótgróinni tengingu við líkama og huga þannig að þú mætir jólunum með meiri ró, orku og gleði.
Þetta er fyrir konur sem:
Ekki bíða eftir janúar
Þú þarft ekki að breyta öllu, bara mæta fyrir þig sjálfa, nokkrar mínútur á dag.
Þetta er tækifæri til að gera jólin nærandi, létt og meðvituð.
Við byrjum 1. desember
Þú ert þess virði að mæta hátíðunum með ró, jafnvægi og gleði.
Skráðu hér að neðan til að vera með!
Meira um námskeið og handbækur
Ferlið með mér
Meira um námskeið og handbækur
Ferlið með mér
Næring.com